Blogg25.3.2007Leggðu frá þér áhyggjur dagsins, hverja af annari. Engin þörf á að flýta sér. Leyfðu friðnum að nálgast. Slakaðu á , smátt og smátt. Kyrrðu hugann. Andaðu hægt og finndu hvernig heimurinn hopar með ys sinn og þys, fyrir hugarrónni kyrrðinni, í friðsælu athvarfi þínu. Pam Brown 8.3.20078. MarsTIL HAMINGJU MEÐ DAGINN !! ÁFRAM STELPUR !! 7.3.2007Í DraumalandinuÉg er nú reyndar að lesa bókina Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason, ætla samt ekki að skrifa um hana þó að mér finnist hún góð. Heldur ætla ég að skrifa aðeins um draum sem mig dreymdi í nótt og þykir nokkuð skondinn. Semsagt þá dreymdi mig að það átti að fara að vera einhver skemmtun hérna á Stöðvarfirði og þær vinkonur mínar Þóra Björk og Helga Páls. ætluðu heldur betur að troða upp og voru að leyfa mér að heyra lag sem þær sömdu og ætluðu að flytja á skemmtuninni, og textann við lagið sömdu þær líka þessir snillingar. Þetta lag var alveg rosalega flott svo sungu þær alveg eins og englar og Helga spilaði ljómandi vel undir á kassagítar, og ég varð alveg heilluð þetta var svo flott hjá þeim. Mér finnst þetta bara skondið vegna þessa að þær stöllur eru nú ekki mikið að syngja og spila á gítar, en allt getur gerst og kannski er ég bara orðin berdreymin, svona með aldrinum. Vonandi. 5.3.2007KyrrðÞessi mynd var tekin í Fögruhlíð fyrir nokkrum árum síðan. Flettingar í dag: 35 Gestir í dag: 8 Flettingar í gær: 71 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 69997 Samtals gestir: 19900 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 10:39:26 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |