Blogg31.12.2007Gamlársdagur.Ég vaknaði snemma núna síðasta dag þessa árs, glaðvaknaði kl. 1/2 8 og dreif mig bara á fætur, ennþá niðamyrkur úti en notalegt að sitja við eldhúsborðið og borða morgunverðinn við kertaljós og huggulegheit. Betra veður en í gær hætt að rigna og hefur lægt, held samt að við höfum sloppið vel hér á Stöðvarfirði. Búin að hafa það fínt um jólin en samt svolítið skrýtin jól þetta árið því ég var að vinna á þorláksmessu og aðfangadag til kl. 8 um kvöldið og því ekki komin heim fyrr en kl. rúml. 9. Þurfti svo að fara á næturvakt annan í jólum en er búin að vera í fríi síðan 28. og fer að vinna í fyrramálið. Þetta blessaðist samt allt. Þegar ég kom heim á aðfangadagskvöld þá var voða jólalegt Alda búin að klára að skreyta og kertaljós út um allt og hún búin að elda hamborgarhrygginn, ég þurfti bara að brúna og steikja kartöflur, var búin að gera sósuna. Þannig að við frestuðum bara jólunum um nokkra klukkutíma og það er greinilega ekkert mál. Þetta var líka hið notalegasta aðfangadagskvöld og frábært að hafa börnin heima. Hilmar stoppaði því miður stutt og fór aftur suður 28. fæ að hafa Öldu aðeins lengur en hún fer núna rétt eftir áramót. Ég dreif mig náttúrulega á hjónaballið og var það hin besta skemmtun, maturinn algjört æði og mikið dansað á eftir. Í kvöld ætlum við Alda bara að hafa það notalegt og eftir allt kjötátið ætlum við að elda humar og einhvern rækjurétt nammi namm, það er að segja ef það er til humar í Krónunni þurfum nefnilega að fara þangað á eftir að versla. Enda hér með nokkrum myndum, verst að ég hélt að ég væri búin að stilla myndavélina þannig að fólk væri ekki með rauð augu þegar tekið er með flassi en greinilega var ég ekki búin að því, en það er kannski bara jólalegt að vera með rauð augu um jólin. GLEÐILEGT ÁR!! og þakka góð samskipti á árinu. ![]() ![]() ![]() 23.12.2007Gleðileg jól!!!![]() 11.12.2007Piparkökubakstur.Hilmar og Alda á fullu í piparkökubakstri hér áður fyrr.... ![]() ![]() 8.12.2007GjöfinUngur maður ætlaði að gleðja kærustuna sína á afmælisdaginn hennar, þau höfðu ekki verið lengi saman og eftir dágóða umhugsun þá ákvað hann að kaupa handa henni loðfóðraðar lúffur það væri rómantísk gjöf en ekki of persónuleg. Hann fór í bæinn með yngri systur kærustunnar og hún hjálpaði honum að velja lúffurnar, sjálf keypti systirin sér nærbuxur. 6.12.2007Að passa í kjólinn fyrir jólin..Aldrei þessu vant þá steig ég á vigtina í morgun og fékk vægt sjokk því ég komst að því að ég er búin að léttast um 5 kíló, hvorki meira né minna, úff. Kannski ekki skrýtið því að ég geng marga kílómetra á hverri vakt í vinnunni minni. Svo að nú er bara um að gera að bretta upp ermarnar og fara að borða meira og meira. Sem betur fer finnst mér alveg rosalega gott að borða og verð ekki í vandræðum með að ná á mig þessum 5 kílóum sem ég sakna alveg gífurlega.. Það er t.d. alveg tilvalið fyrir mig að leggjast í smákökuát núna á aðventunni svo að ég passi nú í kjólinn fyrir jólin. Annars er ég komin í þetta fína jólaskap, búin að hlusta á jóladiska frá því að ég vaknaði í morgun, hef mikið uppáhald á jóladiski með Diana Krall og er mikið búin að hlusta á hann síðustu vikur, þarf að fara að hvíla hann aðeins. Svo er Alda að koma heim í næstu viku með dýrin sín, þá verður nú kátt í höllinni. Jæja læt þetta duga að sinni, ætla að fara að finna eitthvað fitandi og gott í ískápnum. Nammi namm... Flettingar í dag: 98 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 57 Gestir í gær: 17 Samtals flettingar: 69853 Samtals gestir: 19867 Tölur uppfærðar: 17.3.2010 23:29:01 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |