Blogg26.1.200826.jan.![]() ![]() 23.1.2008Ekta jólasnjór.Það hefði verið fínt að fá þennan jólasnjó fyrir mánuði síðan. ![]() Það voru fleiri en ég að taka myndir úti í garði. ![]() Fleiri myndir í myndaalbúmi. 18.1.2008Í dag. 17.1.2008Gaman á skautum.Alltaf gaman að kíkja á ritgerðirnar sem ég skrifaði þegar ég var í skóla. Fannst alveg hrikalega leiðinlegt að skrifa ritgerð og hefðu bækurnar fengið að fjúka í ruslið ef mamma hefði ekki komið þeim undan í tæka tíð án þess að ég vissi. Alltaf skynsamar þessar mömmur. En hér er ein og heitir hún: Endurminning frá liðnum vetri. Í fyrravetur fórum við Þóra upp á Háahnaus á skauta. Við vorum bara tvær á svellinu. Það var svo gaman, við fórum í eltingaleik, Þóra elti mig, ég datt á rassinn og við Þóra fórum að skellihlæja. Svo elti ég Þóru. Það var pínulítil vök á svellinu, þegar ég var að elta Þóru þá var hún nærri því dottin ofan í vökina og við fórum að hlæja. Svo var okkur orðið svo kalt að við fórum. Svo um kvöldið fórum við fyrir ofan hús. Það var snjóskafl þar. Við bjuggum okkur til tvö snjóhús. Ég setti kerti inn í mitt snjóhús og Þóra setti kerti í sitt. Svo var okkur svo kalt að við fórum inn. 13.1.2008Hressandi.Var að koma úr stuttri fjallgöngu og mikið var það hressandi og gott að dusta aðeins af sér rykið. Kominn smá snjór og er það góð tilbreyting frá rigningardögunum sem hafa verið hér undanfarið. ![]() ![]() Fleiri myndir í myndaalbúmi. Flettingar í dag: 34 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 35 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 69925 Samtals gestir: 19883 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 10:39:26 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |