Blogg31.3.200825.ára daman.Þessi færsla átti að koma 29. mars, en það var verið að uppfæra 123.is akkúrat þá þannig að ég varð að bíða aðeins með það. 28.3.200828.mars.Bara komin helgi eina ferðina enn, tíminn flýgur svoleiðis áfram. Það er vinna hjá mér alla helgina eða næstu 3 nætur, en svo 3 dagar í frí eftir það. Mér líst ekkert á veðrið, það virðist vera ágætt á köflum en svo koma vindkviður og mikið fjúk þannig að það er örugglega blint að keyra. Ég er nefnilega orðinn smá bílhrædd í svona veðri eftir að rútan fór út af í vetur á leiðinni til vinnu, þá vaknaði ég af værum blundi við það að rútan var að fara út af en sem betur fer var það á góðum stað þannig að það fór allt vel, en ég fæ mér örugglega ekki blund á leiðinni í kvöld ef það verður hvasst. En annars hafið það gott um helgina... 28.3.2008Mikið getur veriðnotalegt á köldu og dimmu vetrarkvöldi með kveikt á ótal kertum að sitja og hlusta á góða tónlist. Það gerði ég í kvöld þegar ég ákvað að nóg væri komið af sjónvarpsglápi og slökkti á sjónvarpinu og kveikti á geislaspilaranum í staðinn, gróf upp disk sem ég hef ekki hlustað á í marga mánuði og er það diskurinn, No more shall we part með snillingnum Nick Cave alveg hreint frábær diskur og núna er ég að hlusta á disk sem ég keypti í haust og er mikið búin að hlusta á og það er, Picures með Katie Melua, alveg meiriháttar. 22.3.2008Gleðilega páska!!![]() 22.3.2008Malarinn sem spangólaði.Ég er að lesa þessa frábæru bók sem er eftir finnska rithöfundinn Arto Paasilinna. Hann skrifaði einnig Ár hérans og Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð, báðar mjög góðar. Bókin sem ég er að lesa er um Gunnar Huttunen sem kemur til lítils bæjar í Norðurhéruðum Finnlands, skömmu eftir seinna stríð. Hann gerir þar upp gamla myllu og byrjar að rækta grænmeti. Hann virðist vera ágætis kall en hann þolir ekki smámunasemi og slúður fólksins. Þegar hann er búinn að fá yfir sig nóg af þessu öllu, þá fer hann út í skóg, horfir á mánann og spangólar. Allir hundar á bæjunum í kring taka þá undir með honum og þorpsbúar geta ekki sofið. Flettingar í dag: 17 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 85 Gestir í gær: 8 Samtals flettingar: 69367 Samtals gestir: 19786 Tölur uppfærðar: 11.3.2010 11:18:14 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |