Blogg31.7.2008Það er búið að vera yndislegt veður hérna síðustu daga. Skrapp aðeins upp í fjall í góða veðrinu í dag, náttúrulega með myndavélina. Þokan er ekki langt undan, alltaf fallegt þegar hún er að læðast inn. 27.7.2008Hér eru nokkrar myndir af Sigurjóni bróðir mínum þar sem hann er að mála sólstofuna sem ég ætlaði að vera búin að mála fyrir nokkrum árum en sló alltaf á frest var samt harðákveðin í að prófa að klöngrast upp í stiga fyrir lok sumarsins og mála, en sem betur fer losna ég við það og er alveg gífurlega þakklát bróðir mínum fyrir að bjarga mér frá því. Ég er nefnilega dálítið lofthrædd og veit ekki alveg hvernig það hefði gengið að standa lengst upp í stiga við að mála, úff. 7.7.2008Ætli það sé ekki kominn tími til þess að skrifa smá. Nokkrir dagar síðan ég kom heim frá Tyrklandi. Ég er alveg í skýjunum yfir ferðinni frábært að vera þarna úti, gott að komast í allt öðruvísi umhverfi en maður er vanur og að kynnast einhverju nýju. Ég á örugglega eftir að fara þarna út einhverntíma aftur eða allavega á svona heitar slóðir. Það var samt voða gott að koma heim enda búin að slappa vel af í fríinu og nú er bara um að gera að fara að bretta upp ermarnar og drífa sig út í garð, því bæði gras og íllgresi hefur vaxið vel þessar þrjár vikur sem ég er búin að vera í burtu. Slatti af myndum eru komnar í myndaalbúmið og álíka slatti kemur á næstunni. Sólsetur í Alanya. Alanya Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 62 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 70099 Samtals gestir: 19925 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:48:49 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |