Blogg22.9.2008Í NýgræðingnumGaman að sjá hvað það er búið að gera flott í Nýgræðingnum, göngustígar,pallar, bekkir, borð, grill og leiktæki ýmiskonar. Við Dýrunn fengum okkur göngutúr þangað í gær og náttúrulega með nesti og gæddum okkur á góðgætinu í haustgjólunni. Þau voru hjá mér um helgina Friðrik og Dýrunn meðan foreldrarnir dvöldu i höfuðborginni og var virkilega gaman að hafa þau, helgin bara alltof fljót að líða. En hér eru nokkrar myndir úr Nýgræðingnum. 15.9.2008Gamla myndinÞetta eru þær systur mamma og Bjagga. 12.9.2008Ekki hef ég verið dugleg að ganga á fjöll um ævina, með öll þessi fjöll í kringum mig. Á hverju sumri er ég búin að ákveða að fara upp á eitthvað fjallið en lítið verður af því nema þá bara í huganum. En hér er gömul skólaritgerð frá því að ég var lítil og fór með mömmu og Mæju upp á Steðja. Skemmtilegur dagur. Einu sinni í sumar, fóru ég, mamma og Mæja upp á Steðjafjall. Við fórum eftir hádegi. Það var svo heitt að ég fór úr peysunni. Við settumst niður. Það voru fáein ber ég tíndi dálítið upp í mig á meðan. Við héldum áfram. Mamma og Mæja voru svo lengi. Ég hljóp á undan þeim. Svo komum við upp á fjallið. Við sáum Hvammsvötnin. Ég hefði getað verið þarna í heilan dag. Mér fannst svo gott að liggja í mosanum. En svo fórum við. Það var orðið dáldið kalt. Við lögðumst niður í laut af því að það var vindur. Í einni brekkunni var mikið af berjum. Svo komum við heim. 3.9.2008RitgerðirLæt hér inn tvær gamlar skólaritgerðir. Endurminning frá liðnu sumri. Einu sinni fór ég í berjamó í Snæhvammi. Ég fór með Herborgu. Við gengum upp gamlatún og með fram læk ég fór innra meginn en Herborg ytra meginn. Þegar ég var að fara upp eftir sá ég svo stóra kónguló, ég varð svo hrædd að ég hljóp burt. Svo komum við upp eftir. Það var svo mikið af berjum að við höfðum ekki við. Ég var með lyftiduftsdunk en Herborg kakódunk. Það var dáldið lyftiduft í dunkinum mínum svo að berin urðu hvít ég ætlaði að henda berjunum en ég hætti við það. Herborg var á undan mér að fylla. Hún hjálpaði mér að fylla. Svo tíndum við uppí okkur. Svo fórum við heim. Tarfurinn. Það var eitt sumar að við fórum til Snæhvamms. Þóra Björk fór með okkur. Það átti að fara að lóga tarfi. Ég, Herborg, Þóra og Jón fórum upp á loft. Þegar var búið að skjóta tarfinn, kíktum við út um gluggann þá sáum við að tarfurinn hreyfðist, þá var hann að taka dauðakippina. Við fórum út að leika okkur, þá segir Þóra Björk, ég þori að hlaupa niður að dráttarvélinni. Þegar hún var komin niður að dráttarvélinni segir Jón, tarfurinn er að koma og Þóra þýtur af stað og þar sem við vorum. En Jón var að plata, tarfurinn lá niðri á túni dáinn. Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 62 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 70099 Samtals gestir: 19925 Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:48:49 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |