Blogg

30.1.2009



                                    Þegar hjartað er í uppnámi
                                       skaltu leita rósemdar
                                    kyrláts hafs í mánaskini,
                                        friðsæls staðar,
                                      fallegs landslags
                                   og láta kyrrðina flæða
                                         gegnum þig
                                  og bera burt áhyggjur þínar
                                                                          
                                                                             Pam Brown

Skrifað 30.1.2009 kl. 16:10 af

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.1.2009

Mikið að gerast í pólitíkinni í dag, það hlaut að koma að því að eitthvað færi að gerast en ekki ætla ég að fara að tjá mig neitt um það nema að ég vildi bara óska þess að sjálfstæðismenn tækju sér gott frí, þá færi kannski eitthvað gott að gerast.

Helgin var fín hjá mér og fljót að líða enda ýmislegt að snúast.
Stöðvarfjarðardeild Rkí  búin að fá Heimalund til afnota meðan hann ekki selst og opnuðum við á laugardaginn og buðum upp á  kaffi og meðlæti, góð mæting og á húsið alveg örugglega eftir að nýtast vel.


Svo fékk ég að rifja það upp hvernig er að vera með börn á heimilinu, Friðrik og Dýrunn voru nefnilega hjá mér um helgina meðan foreldrarnir dvöldu í höfuðborginni og var  alveg stórfínt að hafa þau hér. Nema hann Múksi, kötturinn hennar Öldu, var ekki alveg sáttur við þessa truflun og flúði niður í kjallara og hélt að mestu til í draslinu undir kjallaratröppunum, alla helgina.

Hér er verið að spila Jólasvein á jeppa.

Letidagur í dag, var svona að mestu að snúast í kringum sjálfa mig og hlusta á fréttirnar.  Lagaði aðeins til á heimilinu og dreif mig svo í stutta fjallgöngu seinnipartinn, virkilega hressandi.







Skrifað 26.1.2009 kl. 20:55 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.1.2009

Það rignir.

Gaman að sjá muninn á myndum sem maður tekur úti eftir því hvort maður notar flass eða ekki. Fyrri myndin er tekin með flassi og hin ekki.








Skrifað 25.1.2009 kl. 11:27 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.1.2009

Áttfætlan ógurlega (Eight legged freaks)

er í sjónvarpinu núna og er örugglega ógurleg.  Þessi mynd er um eitraðar kóngulær sem stækka gífurlega vegna efnamengunar og herja á íbúa í afskekktum námubæ.   Ég var fljót að slökkva á sjónvarpinu þegar þulan var búin að kynna þessi óskup.   Ég er hrædd við kóngulær, mér finnst þær ógeðslegar, ég fæ um mig hroll bara við það að sjá þær á mynd og ætla því ekki að fara að horfa á kvikmynd með risavöxnum og blóðþyrstum kóngulóm hlaupandi út um allt og étandi fólk.   Nei nei þá ætla ég nú frekar að leggjast upp í sófakrílið mitt og lesa bók um morðóðan mann eða konu eftir Lisu Marklund.   Kannski dreymir mig samt kóngulær í nótt, ég sé nefnilega ekkert nema kóngulær þegar ég rétt svo blikka augunum,  bara við það að skrifa þessa stuttu færslu. Já svona get ég nú verið rugluð.emoticon

Skrifað 23.1.2009 kl. 23:23 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.1.2009

Gamla myndin



Ég veit ekki alveg hvaða ungu konur þetta eru, en ég held að þetta sé Nanna Ingólfsd. sem er með gítarinn og svo gæti þetta verið ein af Hvalnessystrum lengst til hægri. Alltaf gaman af þessum gömlu myndum.

Skrifað 14.1.2009 kl. 22:32 af

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.1.2009

Skoða nánar

6.1.2009

Fallegt á héraði í dag!!

Skoða nánar

1.1.2009

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 85
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 69367
Samtals gestir: 19786
Tölur uppfærðar: 11.3.2010 11:18:14

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Áslaug Friðriksdóttir

Farsími:

8494789

Heimilisfang:

Stöðvarfirði

Tenglar