Blogg12.12.2009JólasveinarNúna eru jólasveinarnir farnir að tínast einn og einn til byggða að gefa börnum eitthvað fallegt og gott í skóinn. Ég man það þegar ég var lítil hvað það var spennandi að vita hvað væri í skónum á morgnana, en það kom fyrir að skórinn var tómur og þá vissi ég að ég yrði sko að bæta hegðun mína. Þeir voru ekki farnir að gefa óþægum krökkum skemmdar kartöflur þá, enda orðið langt síðan að ég var að setja skóinn út í gluggann, en einu sinni hafði ég verið mjög óþæg og í skónum daginn eftir var þar skammarbréf til mín því jólasveininum blöskraði svo óþægðin í mér. Ég man nú ekki hvað stóð í bréfinu en ég man bara að ég var alveg yfir mig hneyksluð yfir því hvað jólasveinninn skrifaði hrikalega ílla og svo skildi ég bara alls ekki hvað hann Sigurjón stóri bróðir minn var svoleiðis algjörlega ósammála mér, honum fannst þetta bara ekkert ílla skrifað, skrýtið.. Hérna er svo mynd af hressum sveinum sem stilltu sér svona vel upp úti í garði eftir að hafa komið hér við og fært Hilmari og Öldu jólapakka á aðfangadag, þegar þau voru lítil, og voru hér á ferð um þorpið að færa krökkum jólapakka, sem þeir gera alltaf á aðfangadag. Flettingar í dag: 42 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 71 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 70004 Samtals gestir: 19903 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 13:10:34 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Áslaug FriðriksdóttirFarsími: 8494789Tölvupóstfang: aslaugf@hotmail.comHeimilisfang: StöðvarfirðiTenglar |